Girnó á vinnustaðinn eða í endursölu?
Ertu að leita að næsta glaðning fyrir starfsfólkið, eða vilt þú bjóða viðskiptavinum þínum upp á hágæða cookies? Við hjá Girnó elskum að vinna með fyrirtækjum sem gera kröfu um hágæða handverk.
Hér eru tvær leiðir til að vinna með okkur:
1. Fyrirtækjaáskriftir (Föstudagskaffið sem allir mæta í)
Gleymdu þurrum snúðum. Með áskrift hjá Girnó færð þú ferskar, lúxus smákökur afhentar beint á skrifstofuna á tilsettum tíma - vikulega eða mánaðarlega. Við sérsníðum sendinguna að stærð fyrirtæki þíns svo það sé tryggt að allir fái sinn skammt.
2. Endursala & Heildsala (Fyrir kaffihús og verslanir)
Vilt þú stækka úrvalið á kökubarnum hjá þér? Við bjóðum upp á sérstaka heildsölusamninga fyrir valda samstarfsaðila sem vilja selja kökurnar okkar. Við tryggjum pottþétta afhendingu, ferskleika og vöru sem selur sig sjálf um leið og hún lendi í glerbúrinu/hillunni.
Hvernig virkar þetta?
Vegna þess að við leggjum metnað í ferskleika, þá bökum við allt eftir pöntun. Við gefum okkur 24 tíma til að staðfesta og skipuleggja fyrirspurnir og 48 tíma í bakstur til að tryggja að varan mæti algerlega fullkomin til ykkar.Öll viðskipti eru þægilega kláruð með reikningasendingum beint í netbanka.
Ertu tilbúin(n) í samstarf?
Sendu okkur línu á girno@girno.is með eftirfarandi upplýsingum:
- Heiti fyrirtækis og tengilið.
- Um hvað ræðir (Áskrift á skrifstofu eða endursölu).
- Áætlað magn og hversu oft þið viljið fá afhendingu.
Við heyrum í þér innan 24 tíma!